Jæja hvað segið þið þá?
Hvað er að frétta!?
Orðið á götunni segir að Erla sé búin að fjárfesta í einu stykki íbúð einhversstaðar hér í borginni. Til hamingju með það! Ætla að vera svo ósvífinn að krefjast þess að fá heimboð einn góðan veðurdag!

Það má líka alveg vera ef það skellur á hríðarbylur...

... Allir fluttir að heiman, allt svo fullorðins..
Mér var að detta í hug að reyna að hittast eitthvað núna á næstunni... Kannski bara heima hjá mér í næstu viku?? Hvernig er stemmingin fyrir því? Endilega komið með tillögur um hvenar og hvaða dag.
Hvenar byrjið þið svo í skólanum? Eru allir über spenntir fyrir vetrinum? Eru einhverjir sem verða kannski bara að vinna?
Af mér er það helst að frétta að ég er að hætta í vinnunni á morgun! Er orðin mygluð í hel á því að vera hanga hérna. Er búin að vera "ofur hressa gellan" í afgreiðslunni sem hefur ekkert að gera annað en að hanga á facebook. En þetta var samt alveg ágætis vinna á meðan það er eitthvað að gera....
Annars er sumarið búið að þjóta áfram og ég er ekki ennþá byrjuð að gera allt sem ég ætlaði mér að gera. Ég er meira að segja búin að gleyma hvað ég ætlaði að gera.
Endilega segið mér eitthvað..! Ég á alveg 12 og hálfan tíma eftir í vinnu í dag og á morgun, og vantar eitthvað að lesa... Nema þið flykkist hingað til mín og gefið blóð, þá hef ég líka eitthvað að gera

Bæjó spæjó
Kæja mygl